Einn var með allar tölur réttar í lottóoútdrætti kvöldsins og fær hann í sinn hlut tæplega 9,6 milljónir króna. Vinningsmiðinn var keyptur á Olís í Borgarnesi.
Þá var einn með fjórar réttar og fær hann í sinn hlut um 420 þúsund krónur. Miðinn var í áskrift. Enginn var með allar jókertölurnar réttar en fjórir voru með fjórar tölur réttar og fá þeir í sinn hlut 100 þúsund krónur hver. Þrír miðanna voru í áskrift en einn miðinn var keyptur í Skaftárskála á Kirkjubæjarklaustri.
Vinningstölurnar voru : 15, 16, 21, 27, 39 – Bónustalan var 5 og jókertölurnar voru : 7, 0, 0, 7, 1
Umræða