• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ísland og Kanada horfa til aukins samstarfs um öryggis- og varnarmál

Frá pallborðsumræðum um öryggis- og varnarmál á Norðurslóðum

Ísland og Kanada horfa til aukins samstarfs um öryggis- og varnarmál

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. júlí 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Aukið samstarf Íslands og Kanada um öryggis- og varnarmál á Norðurslóðum var til umfjöllunar á ráðstefnu (e. Canada-Iceland Seminar: Maritime Defence and Security in the North) sem haldin var nýverið í Ottawa, höfuðborg Kanada. 

Ráðstefnan var haldin í samstarfi sendiráðs Íslands í Ottawa, Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands, Mobilizing Insights in Defence and Security (MINDS), Háskólans í Manitoba, sendiráðs Kanada í Reykjavík, Stríðsminjasafns Kanada í Ottawa, North American and Arctic Defence and Security Network (NAADSN), Global Affairs Canada | Affaires mondiales Canada og Alþjóðastofnunnar Háskóla Íslands.

Ráðstefnuna sóttu íslenskir og kanadískir sérfræðingar, þar sem sameiginlegar áskoranir og tækifæri þjóðanna er lúta að öryggis- og varnarmálum á Norðurslóðum voru til umræðu. Í þremur pallborðsumræðum ráðstefnunnar var fjallað um nýjar öryggisáskoranir er varða varnir og öryggi á sjó , ólöglegar fiskveiðar og aukið eftirlit með þeim auk áhrifa loftslagsbreytinga á öryggi.

Frá Íslandi tóku þátt Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, Brynhildur Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri Northwest Atlantic Fisheries Organization (NAFO), Hlynur Guðjónsson, sendiherra, sendiráði Íslands í Ottawa, Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunnar Háskóla Íslands, Dr. Valur Ingimundarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og Þorlákur Einarsson, meistaranemi frá Háskóla Íslands og sérfræðingur í utanríkisráðuneytinu.

Nánari samantekt um efni málþingsins má nálgast hér.

Ráðstefnan var sú þriðja í röðinni sem samstarfsaðilarnir stóðu fyrir um málaflokkinn, þ.e. til að auka samræðu og samstarf Íslands og Kanada um öryggis- og varnarmál. Fyrsta ráðstefnan var haldin á Íslandi í nóvember 2021. Árið eftir var aftur haldin ráðstefna hérlendis þar sem sérfræðingar skiptust á skoðunum m.a. um áhrif alþjóðastjórnmála á Norðurslóðir. Samantekt af þeirri ráðstefnu má nálgast hér.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    415 deilingar
    Share 166 Tweet 104
  • Næsta lægð nálgast

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?