• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 30. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Átta milljarða krafa gegn Valitor vegna WikiLeaks enn fyrir dómstólum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. júlí 2018
in Óflokkað
A A
0

Átta milljarða krafa gegn Valitor vegna WikiLeaks enn fyrir dómstólum

Tölvufyrirtækið Datacell sem sá um greiðslugáttina fyrir WikiLeaks á Íslandi, höfðaði dómsmál á hendur Valitor fyrir Hæstarétti árið 2013. Hæstiréttur staðfesti að lokun Valitor á greiðslugátt fyrir WikiLeaks hefði verið ólögmæt. Visa International krafðist lokunarinnar. Landsréttur hafnaði kröfu um matsbeiðni á fjártjóni vegna lokunar á greiðslugátt Datacell ehf. hjá Valitor, vegna söfnunar fyrir WikiLeaks í s.l. viku.

Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Datacell fór fram á kyrrsetningu á eignum Valitor fyrr á árinu en sú krafa náði ekki fram að ganga fyrir dómstólum. En málinu er hvergi lokið þar sem að enn er verið að vinna í því og það enn rekið fyrir dómstólum og nú síðast fyrir Landsrétti í s.l. viku.
DataCell ehf. og Sunshine Press Productions ehf.  stefndu Valitor hf. til þess að greiða samtals um átta milljarða skv. aðalkröfu sem að lýst hefur verið og er nú reynt að innheimta með málsókn.
Í málinu gera stefnendur aðallega þær dómkröfur að Valitor hf. verði gert að greiða Sunshine Press Productions ehf. 7.698.931.792 krónur og DataCell ehf. 405.206.936 krónur.
Til vara er þess krafist að stefndi greiði Sunshine Press Productions ehf. 3.495.026.310 krónur og DataCell ehf. 183.454.927, til þrautavara er krafist greiðslu 1.267.825.851 króna til Sunshine Press Productions ehf. og 66.727.676 króna til DataCell ehf.  Að þessum kröfum frágengnum gera stefnendur loks kröfu um stefndi verði gert að greiða stefnendum bætur sem ákveðnar verði að álitum. Í öllum tilvikum er gerð krafa um vexti og dráttarvexti og málskostnað úr hendi stefnda.
Forsaga málsins er sú að Visa og Mastercard lokuðu á greiðslugáttir til uppljóstrunarsíðunnar WikiLeaks og talið er að stórar fjárhæðir hafi tapast vegna þessa.
WikiLeaks og DataCell sem umboðsaðili á Íslandi, lögsóttu bæði Visa og Mastercard í kjölfarið og féll dómur í júlí 2012 í héraði, WikiLeaks og DataCell í vil. En hið síðarnefnda félag sá um allan málarekstur vegna málsins sem umboðsaðili WikiLeaks á Íslandi. En krafan beindist gegn Valitor á Íslandi sem er umboðsaðili Visa International.

Valitor var gert að opna strax greiðslugátt DataCell fyrir WikiLeaks þann 12. júli 2012 skv. dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Þeim dómi var áfrýjað til Hæstaréttar.

Deilur WikiLeaks og DataCell gegn Valitor má þó rekja fyrst aftur til ársins 2010 þegar Visa og MasterCard létu loka á greiðslur til uppljóstrunarsíðunnar og var það gert vegna kröfu bandarískra stjórnvalda. Árið 2011 opnaði Valitor svo fyrir greiðslugáttina en bara í nokkra klukkutíma vegna þess að Visa International fór fram á að henni yrði lokað þá þegar.
Tölvufyrirtækið Datacell sem sá um greiðslugáttina fyrir Wikileaks á Íslandi, höfðaði þegar dómsmál og kom úrskurður Hæstiréttur loks árið 2013 og staðfesti að lokunin hafi verið ólögmæt. Á grunni þess dóms var gerð krafa um kyrrsetningu í byrjun árs og svo er málið enn rekið í dómskerfinu.
DataCell var hýsingaraðili fyrir vefsíðu WikiLeaks og tók á móti greiðslum frá stuðningsfólki síðunnar og rak einnig málið gegn Valitor hér á landi. Fyrir lágu gildir samningar milli aðila um að korthafar gætu styrkt WikiLeaks í gegnum vefsíðuna skv. þeim samningi.
En Valitor braut þann samning um leið og að birt voru gögn frá bandaríska hernum á uppljóstrunarsíðunni. Þá var lokað á allar greiðslugáttir til WikiLeaks að beiðni bandarískra stjórnvalda eins og áður segir. Visa og Mastercard erlendis höfðu einnig orðið við kröfu bandarískra stjórnvalda og var WikiLeaks því einangrað frá víðtæku neti kortafyrirtækjanna tveggja um allan heim. Engin eigna- eða stjórnunartengsl voru á milli WikiLeaks og DataCell og þau voru einungis viðskiptalegs eðlis, til þess var m.a. litið fyrir dómi.
Það virðist ljóst að þessu máli er ekki enn lokið og munum við fylgjast með framgangi þess og hér eru síðustu fréttir af málinu .

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Hverjir eiga Ísland? – Nýríkir milljarðamæringar

    122 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    833 deilingar
    Share 333 Tweet 208
  • Lögreglan leitar tveggja manna

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Bankarnir hóta viðskiptavinum

    528 deilingar
    Share 211 Tweet 132
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?