Nefndarmenn fjárlaganefndar Alþingis krefjast þess að starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur, fyrrum bankastjóra Íslandsbanka, verði birtur strax. Stjórnarformaður bankans hyggst ekki verða við þeim kröfum. Fjallað er um málið á fréttavef Vísir.is og þar segir:
Aðfaranótt miðvikudags greindi Íslandsbanki fá því að Birna hefði sagt upp störfum. Finnur Árnason stjórnarformaður bankans sagði starfslokasamning hafa verið gerðan við Birnu í samræmi við ráðningarsamning hennar og í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki. Samningurinn yrði þó ekki birtur fyrr en í uppgjöri bankans.
Er það samróma álit meirihluta nefndarmanna fjárlaganefndar að samningurinn verði birtur strax, ekki sé ástæða til að bíða með þær upplýsingar. Finnur hyggst þó ekki verða við þeim kröfum samkvæmt svari við skriflegri fyrirspurn fréttastofu Vísis í morgun.
Umræða