Tillaga að rekstrarleyfi Veiðifélags Ytri-Rangár til fiskeldis að Laxeyri á Húsafellslandi
Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Veiðifélag Ytri-Rangár vegna seiðaeldis að Laxeyri á Húsafellslandi í Borgarbyggð. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi þar sem hámarkslífmassi miðast við 40 tonn af laxi.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. desember 2021
Umræða