Frosti Logason fjölmiðlamaður fer yfir mál Eddu í nýjasta þætti hlaðvarps síns Harmageddon. Edda hefur deilt við barnsföður sinn sem er íslendingur, um forræði yfir sonum þeirra. Barnsföður hennar hefur verið dæmt forræðið fyrir norskum dómstólum og hefur Frosti aflað ýmissa gagna, bæði frá yfirvöldum og einstaklingum. Upplýsingarnar hafa ekki komið fram áður og koma þær mjög á óvart, séu þær allar sannar, svo vægt sé til orða tekið.
„Hérna ætlum við að fara í mál sem að ég tel vera einhvern mesta, ljótasta og svartasta blett á hinu frjálsa lýðræðisríki sem Ísland telur sig vera og jafnréttisparadís sem hún er oft kölluð. Við erum að tala um hryllilegt ofbeldismál sem virðist vera allt einhvern veginn skrumskælt og afbakað í fjölmiðlum. Við erum að tala um algerlega klippt og skorið, hreint og klárt tálmunar- og barnaránsmál.“
„Jú, við erum að tala um fréttirnir af, hvað heitir hún, Edda Björk Arnardóttir sem að hefur viðurkennt og það er auðvitað öllum ljóst að hún fór til Noregs á sínum tíma og rændi börnum sínum af barnsfeðri. Hún er sannarlega blóðmóðir piltanna og allt það en hún rænir börnunum vegna þess að honum hafði verið dæmt ekki bara lögheimilið heldur fullt forræði.“
„Það er búið að margdæma þessa konu. Hún er sem sagt dæmdur glæpamaður. Hún er búin að brjóta lög trekk í trekk. Hún hefur rænt drengjunum sem er ólöglegt. Hún hefur líka haldið þeim eftir áður. Það var eitt dæmi sem leiddi til þess að honum var dæmt fullt forræði. Faðirinn vildi. Ég hef lesið það í gögnum málsins, að hún fengi fullt aðgengi að börnunum þetta yrði 50/50 skipting, vika og vika og svo framvegis.“
Þetta og mjög margt fleira sem ekki hefur áður komið fram er í myndbandinu hér að neðan:
Handtökuskipun á móður sem nam börn á brott af heimili föðurs
Handtökuskipun á móður sem nam börn á brott af heimili föðurs