Leigubílar sóttu óttaslegna gesti á hótelið við Bláa lónið í nótt. Bílstjóri sem Víkurfréttir ræddu við segir að farþegar sem hann sótti hafi verið í mikilli geðshræringu og komið hlaupandi út í leigubílinn.
Um er að ræða tugi gesta sem vildu komast í burtu af svæðinu að sögn Víkurfrétta. Staðfesti leigubílstjórinn að óskað hafi verið eftir bílum fyrir a.m.k. um 40 farþega. Farið var með þá á hótel á Suðurnesjum og í Reykjavík.
Grjót hefur hrunið á veginn og upp að anddyri hótelsins en háir hraunveggir eru á svæðinu.
Umræða