• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Sunnudagur, 28. maí 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Gildistími ferðagjafar verði framlengdur

ritstjorn by ritstjorn
27. nóvember 2020
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur kynnt ríkisstjórn frumvarp um framlengingu á lögum um ferðagjöf, nr. 54/2020. Með breytingunni verður gildistími þeirra ferðagjafa sem ekki hafa verið nýttar eða ekki nýttar til fulls framlengdur til 31. maí 2021, eða um fimm mánuði.   

Einstaklingar með íslenska kennitölu og skráð lögheimili á Íslandi, fæddir 2002 og fyrr, fengu Ferðagjöf að andvirði 5000 kr. í júní. Gjöfin er liður í því að styðja við bakið á íslenskri ferðaþjónustu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Hér má kynna sér hvernig hægt er að sækja og nýta ferðagjöfina.

Ferðagjöfin hafði gildistíma til áramóta, en með því að framlengja gildistímann má nýta þegar ætlað fjármagn til að veita ferðaþjónustufyrirtækjum hérlendis frekari viðspyrnu yfir vetrartímann og fram á vor 2021. Með því er einnig brugðist við þeim aðstæðum sem skapast hafa vegna samkomubanns og lokanna undanfarna vikur og mánuði.

175 þúsund einstaklingar hafa þegar sótt ferðagjöfina, af um 280 þúsund sem hafa fengið hana útgefna. Af þeim hafa um 125 þúsund einstaklingar þegar nýtt sér ferðagjöfina. Tæplega fimmtíu þúsund ferðagjafir hafa enn ekki verið nýttar. Frumvarpið verður nú kynnt og lagt fyrir Alþingi.

Discussion about this post

  • Samgöngustofa hættir innheimtu bifreiðagjalda

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Lífið eftir framhjáhald og daður á samfélagsmiðlum

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • NÝ ÖKUSKÍRTEINI

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Teitur Björn Einarsson færir ítarleg rök gegn stjórnarfrumvarpi

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vændiskonur frömdu vopnað rán

    0 shares
    Share 0 Tweet 0

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?