Magnús Karl Magnússon, læknir og eiginmaður Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur, sagði frá því í Kastljósi að eiginkona hans þurfi að greiða um hálfa milljón króna fyrir herbergi á hjúkrunarheimili.
Fjallað var um málið í fréttaþættinum Kastljósi en undanfarið hefur verið umræða um hversu illa sé staðið að aðstoð við alzeimer-sjúkdóminn og er Fréttatímanum kunnugt um tilfelli þar sem kona nær áttræðu, fær enga aðstoð, þar sem hún á eiginmann.
Heilbrigðiskerfið afgreiddi það mál með því að tjá viðkomandi að þar sem hún væri gift, bæri eiginmaðurinn sem er einnig um áttrætt og fársjúkur, fulla ábyrgð á henni. Ábyrgð sem hann er ekki á nokkurn hátt fær um að bera. Það var ekki hlustað á það og sagt að svona virki bara kerfið.“
Greiða um hálfa milljón fyrir herbergi á hjúkrunarheimili
Í áðurgreindu viðtali í Kastljósinu segir Magnús: „Mér finnst þetta ekki íslensku samfélagi sæmandi að rukka fólk um mörg hundruð þúsund fyrir heilbrigðisþjónustu,“ segir Magnús Karl Magnússon, læknir og eiginmaður Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur. Þau hafa rætt opinskátt um alzheimers-sjúkdóminn sem Ellý Katrín greindist með óvenjuung, eða rétt um fimmtugt.
Magnús Karl segir að þegar eiginkona hans þurfti að flytjast á hjúkrunarheimili hafi komið í ljós að kostnaðurinn er 470 þúsund krónur á mánuði.
„Í framkvæmd laganna eigum við að reyna að gæta jafnræðis, en þarna sýnist mér verið að mismuna fólki eftir sjúkdómum,“ segir hann. Hvergi annars staðar en á hjúkrunarheimilum þurfi fólk að standa undir slíkum kostnaði vegna umönnunar.
Fyrir þessu eru ákveðnar aðstæður. Sú veigamesta er að búseta og umönnun er ekki aðgreindir þættir á hjúkrunarheimilum. Þó hefur staðið til hjá stjórnvöldum að greina stöðuna en það hefur ekki enn verið gert.
Magnús Karl bendir einnig á að það sé sérkennilegt að kostnaðarþátttaka sjúklinga sé svona mikil þegar kemur að hjúkrunarheimilum, sem er öðrum að kostnaðarlausu, annars staðar í kerfinu, þurfi þeir á heilbrigðisþjónustu á að halda.
„Fórnarlömbin eru þau sem borga fyrir þjónustuna, og þetta er bara ekki sæmandi,“ sagði Magnús Karl. Það sé öllum ljóst að herbergi með fæði á 470 þúsund krónur á mánuði sé langt út fyrir allan eðlilegan kostnað. „Það þarf augljóslega að gera bót á þessu.“
Hann bendir einnig á stöðu aldraðs fólks í þessari stöðu. Það sé ekki eðlilegt að sá hópur þurfi að greiða svona mikið. „Það er ekki rétt að okkar elstu borgarar séu látnir greiða fyrir hluti, allt í einu, sem okkur finnst ekki eðlilegt að séu greiddir í öðrum þáttum heilbrigðisþjónustunnar.“ Segir í viðtalinu.