• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkið afli tekna og auki velferð

Bankasýslan vissi af áformum Landsbankans um kaup á TM

,,Bankasýslan svaraði tölvupósti Landsbankans samdægurs án athugasemda varðandi kaupin"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. mars 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Bankasýslan var upplýst um áform Landsbankans um að kaupa TM. Þetta kemur fram í svari bankaráðs Landsbankans við bréfi Bankasýslunnar þar sem óskað var eftir upplýsingum um kaup bankans.

Í svarinu segir að bankaráð hafi, frá miðju ári 2023, átt frumkvæði að samskiptum við Bankasýsluna þar sem fram hafi komið áhugi bankaráðs á tryggingamarkaðinum og, eftir atvikum, kaupum á TM.

Þá hafi formaður bankaráðs greint Bankasýslunni frá því að bankinn hefði haft samband við Kviku, eiganda TM, og lýst yfir áhuga á að kaupa tryggingarfélagið. Þetta hafi verið gert í tölvupósti þann 11. júlí 2023. Fram kemur í svarinu að Bankasýslan hefði svarað tölvupóstinum samdægurs án athugasemda varðandi kaupin.

Í framhaldinu hófst formlegt söluferli á TM, þann 17. nóvember. Í lok desember hafi Bankasýslan þá verið upplýst um að bankinn hefði skilað inn óskuldbindandi tilboði í TM. Félagið lagði síðan fram skuldbindandi tilboð þann 15. mars 2024, sem var samþykkt af Kviku.

Fram kemur að Bankasýslan hafi aldrei sett fram athugasemdir eða óskað eftir frekari upplýsingum eða göngum fyrr en tilkynnt var um að Kvika hefði samþykkt skuldbindandi tilboð bankans þann 17. mars.

Í svarinu segir einnig að bankaráð hafi „[uppfyllt] skyldur sínar til upplýsingagjafar í samræmi við núgildandi eigandastefnu ríkisins sem og samkvæmt samningi bankans við Bankasýsluna frá 2010.“

Landsbankinn – Bankasýslan krefst þess að aðalfundi verði frestað

Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    457 deilingar
    Share 183 Tweet 114
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • ,,No borders hafa flúið“ – Þögn vegna ótta : Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?