Atvinnuvegaráðherra hefur ákveðið að auglýsa laust til umsóknar embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar. Auglýsing þess efnis mun birtast á næstum vikum.
Kristján Þór Júlíusson, f.v. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skipaði Þorstein Sigurðsson í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar árið 2021 en hann var þá starfsmaður hans. Núverandi forstjóri hefur gegnt embættinu frá 1. apríl 2021 og rennur skipunartími hans út 31. mars nk.
Atvinnuvegaráðuneytið hefur á undanförnum misserum unnið að mati á stöðu og framtíð Hafrannsóknastofnunar og hafrannsókna á Íslandi. Frumniðurstöður þeirrar athugunar benda til þess að þörf sé á að ráðast í heildstæða stefnumótunarvinnu til að efla stofnunina til frambúðar, bæði með tilliti til lagaumgjarðar, rekstrar og forgangsröðunar verkefna. Segir á vef Stjórnarráðsins.
,,Slíkum breytingum fylgja óhjákvæmilega margvíslegar breytingar á starfsemi og skipulagi stofnunarinnar. Í ljósi framangreinds er það mat ráðherra að rétt sé að auglýsa embættið laust til umsóknar.“
Lýsa yfir vantrausti á Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra
Kristján Þór Júlíusson var gerður að stjórnarformanni Samherja – Fréttatíminn
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra neitar að svara í Samherjamálinu

