F.h. stjórnar Drangeyjar – smábátafélags Skagafjarðar, hefur Magnús Jónsson formaður félagsins birt neðangreinda ályktun félagsins. Á dögunum svipti matvælaráðherra 700 manns atvinnu með einu pennastriki.
Drangey-smábátafélag Skagafjarðar mótmælir harðlega ákvörðun matvælaráðherra um stöðvun strandveiða 11. júlí sl. Með því voru meira en 700 sjómenn sviptir tekjum og rekstargrundvelli kippt undan útgerðum strandveiðibáta og fjölda annarra fyrirtækja um allt land.
Einnig raskaði það starfsemi fiskmarkaða verulega sem og útflutningi á ferskum fiski. Síðast en ekki síst var besti veiðitími sumarsins tekinn af strandveiðisjómönnum á Norður- og Austurlandi þriðja árið í röð .
Samkvæmt ákvæði laga um stjórn fiskveiða er hverju skipi heimilt að stunda strandveiðar í 12 veiðidaga innan hvers mánaðar mánuðina maí, júní, júlí og ágúst. Við það á að standa, annað er í reynd brot á lögum.
Við þetta má bæta að Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, kveðst mjög ósáttur við að forsætisráðherra hafi enn ekki svarað beiðni um fund vegna stöðvun strandveiða. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um og undrast tómlætið og áhugaleysið sem hann hefur aldrei kynnst fyrr, á sínum langa ferli til áratuga.
Trillukarla kórinn, Kári Stefánsson og fleiri mótmæla við Alþingishúsið