Veðurhorfur á landinu
Sunnan 5-13 m/s og skýjað með köflum en dálítil væta á Austfjörðum. Vaxandi suðaustan og sunnanátt í kvöld, 15-23 m/s í nótt og fyrramálið, hvassast suðvestantil. Talsverð rigning sunnan- og vestantil á landinu í nótt en þurrt norðan jökla. Heldur hægari sunnanátt á morgun og allvíða skúrir en áfram þurrviðri norðaustantil. Hiti víða 1 til 7 stig, mildast syðst en um frostmark norðaustnalands í nótt.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Fremur hæg austlæg átt og skýjað með köflum fyrir hádegi. Vaxandi sunnanátt síðdegis, 13-20 m/s og rigning undir kvöld, einkum sunnan og suðaustantil en norðan 10-15 norðvestantil á landinu og þurrt að kalla. Hiti 1 til 6 stig.
Á laugardag:
Sunnan og suðaustan 13-20 m/s og rigning, mikil suðaustantil en snýst í suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum síðdegis og kólnar.
Á sunnudag:
Suðlæg átt, 8-13 og dálítil slydduél eða skúrir en úrkomulítið norðantil. Hvessir og fer að rigna um kvöldið en áfram þurrt að mestu norðaustnatil. Hiti 1 til 6 stig.
Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir áframhaldandi hvassa suðlæga átt og rigningu en þurrt að mestu um landið norðaustanvert. Hiti 2 til 7 stig.
Spá gerð: 20.02.2019 08:01. Gildir til: 27.02.2019 12:00.