Fólk er harmi slegið á landsbyggðinni vegna ákvörðunar Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra um að stöðva strandveiðar áður en þeir örfáu dagar sem strandveiðar eru heimilar, eru liðnir. Fréttatíminn hefur rætt við strandveiðsjómenn víðsvegar um land og þeir vanda ráðherranum ekki kveðjurnar.
Margar kveðjurnar eru með þeim hætti að ekki er hægt að birta þær opinberlega. Það er þó samhljómur með þeim öllum, þar sem koma fram mikil vonbrigði og sárindi vegna þess að nú standa margir af þeim sjómönnum og konum eftir atvinnulaus eftir að öllu var skellt í lás varðandi strandveiðar smábáta í sumar.
Þórður Steinar Árnason var að ganga frá sínum báti á Patreksfirði eftir stuttan tíma við veiðar þetta árið. ,,Ég var að koma úr róðri og er á bát af minni gerðinni, ég tók þennan smá skammt sem heimilt er að veiða, á stuttum tíma. En það hefði verið hægur leikur að ná í fjögur tonn í dag.
Það var bókstaflega fiskur um allan sjó. Mjög góður og vel haldinn fiskur og ég er viss um að það eru engin vísindaleg rök fyrir því að vera að stöðva veiðarnar núna. Það er alla vega ekki ákvörðun til að verja lífríkið, það eru einhverjir aðrir hagsmunir sem er verið að verja.
Það er alveg óhætt að leyfa smábátum að veiða að minnsta kosti 10.000 tonn í viðbót í sumar. Nema þetta um 40 ára gamla kvótakerfi sé ónýtt og þá þarf að breyta því.
Ég neyðist til að hætta veiðum núna og samt allt fullt af fiski um allan sjó, hér rétt fyrir utan en okkur er bannað að sækja björg í bú nema fáa klukkutíma á dag í nokkra daga á sumri. Ég hef tekið pokann minn og er á leiðinni á Austurvöll að mótmæla þessu óréttlæti ásamt hundruðum sjómanna og vonandi þúsundum annara, sem styðja okkar málstað.“ Sagði Þórður Steinar Árnason frá Patreksfirði, þá segir annar sjómaður:
,,Þetta rugl, að vera að stöðva veiðar smábáta sem stunda vistvænustu veiðarnar, er alveg út í hött.
Vinstri grænir eru með hriðjuverkafrumvarp gegn náttúrunni. Stjórnarfrumvarp um að hleypa verksmiðjuskipum, til veiða upp í fjöru nánast, togurum sem eyðileggja lífríki sjávar hvar sem þeir veiða. Þetta er nú öll áherslan á umhverfismál! Það eru um 1000 manns sem stunda vistvænar strandveiðar, sem missa atvinnuna á einum degi og þeir og fjölskyldur þeirra verða fyrir miklu fjárhagslegu áfalli. Það á að gefa þessar veiðar frjálsar frá sumardeginum fyrsta og til síðasta vetrardags.“ Sagði smábátaeigandi á Vesturlandi.
Bæjarfélagið lamaðist daginn sem strandveiðar voru stöðvaðar
,,Hvað eigum við að fara að gera núna þegar búið er að ákveða á skrifstofu í Reykjavík að gera um þúsund manns atvinnulausa á sama degi og þar með koma jafn mörgum fjölskyldum í stórkostlegan vanda? Ber ráðherrann enga ábyrgð á því? Líklega fyrrir hún sig allri ábyrgð eins og þegar hún stövaði hvalveiðar degi fyrir veiðar. Þá misstu margar fjölskyldur allar sínar tekjur líka. Þjóðin er löngu búin að segja VG upp samkvæmt skoðanakönnunum og það er enginn að biðja ráðherrann að vinna uppsagnarfrestinn. Hún er búin að valda nógu miklum skaða.
Stöðvun strandveiða er rothögg fyrir þúsund fjölskyldur í boði Vinstri grænna. Strandveiðar eru að mestu leiti staðsettar á landsbyggðinni. Er þetta byggðastefna Vinstri grænna? Við sem byggjum afkomu okkar á strandveiðum, fáum ekki laun frá ríkinu um hver mánaðarmót í áskrift eins og þetta fólk. Nei, við verðum að strita fyrir hverri krónu daga og nætur. Bæjarfélagið sem ég bý í lamaðist daginn sem strandveiðar voru stöðvaðar.
Ég er löngu búinn að sjá að þetta fólk í 101 Reykjavík er algerlega veruleikafyrrt og hefur engan skilning á því á hverju Ísland hefur lifað á frá landnámi. Ég held að formaður Vinstri grænna ætti að kíkja á fólkið sitt í byggðum landsins og sjá hvernig íslendingar lifa, það væri lærdómsríkt og gæfi jafnvel smá jarðsamband. Nei, hún þorir ekki að láta sjá sig hér enda umboðslaus frá kjósendum og heldur sig bara út í heimi, m.a. í Úkraínu og er orðinn aðal manneskjan hjá NATO og hætt að fara í ,,Ísland úr NATO“ mótmælagöngur til Keflavíkur. Já hringavitleysan og veruleikafyrringin er alger og eftir höfði þessa fólks eiga okkar útlimir að dansa og afleiðingarnar blasa nú við.“ Sagði lífsreyndur vestfirðskur sjómaður með miklum þunga.